Ommiletturnar

06.05.2009 22:25:13 / kusa

Afmæli og Eurovison 16 maí

Hæ hæ
Ég ætla að halda upp á afmælið mitt 16 maí sama dag og eurovision er :)
Við erum svo heppnar að Sólveig á frí þessa helgi og kemur hún á klakann 16 maí og fer aftur 18 maí :)
Ég lofa svaka stuði, þið megið endilega láta mig vita ef þið kunnið einhvern skemmtilega leik sem tengist eurovision :)

Kveðja Stína

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 15:39:28 / kusa

Hittingur föstudaginn 1 maí

Hæ hæ
Ég var að spá að hafa smá hitting heima hjá mér á föstudaginn. Datt í hug að við gætum spilað eða eitthvað svoleiðis. Hvernig lýst ykkur á að hittast í kringum kl 20.
Endilega commentið hverjar komast og hverjar ekki.

Kv. Unnur


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2009 21:08:36 / kusa

Hittingur einu sinni í viku :)

Hæ hæ langt síðan maður bloggaði hérna síðast, örugglega meira en ár síðan.

En allavega mér og Unni datt í hug að hafa hitting einu sinni í viku. Þá gætum við annað hvort spilað, prjónað, spjallað, pantað pizzu og horft á desperate houswives eða bara hvað sem er þarf ekki að vera fyrir fram ákveðið :)

Hvernig lýst ykkur á þetta? Okkur fannst fimmtudagurinn koma sterkt til greina.

Endilega commentið hvað ykkur finnst um þetta og hvaða dagur hentar ykkur best.

Kveðja Stína

» 14 hafa sagt sína skoðun

01.02.2009 17:12:40 / kusa

Og þá er kominn febrúar!!

Jæja... þar sem að 7. febrúar nálgast óðum langaði mig að fá að vita hvort þið stelpur væruð til í hitting annað hvort föstudaginn 6. feb eða laugardaginn 7. feb.? Endilega látið mig vita hvor dagurinn hentar ykkur betur!! :d

kv. Arna! :)

» 11 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 13:04:30 / kusa

Hittingur

Sælar , ég vona að þið kíkið ennþá á þetta blogg. Ég ætla nefninlega að skreppa í smá heimsókn á klakann núna næsta laugardag og ætlaði að athuga hvort þið vilduð koma í smá heimsókn til mín á sunnudagskvöldið.
Þið megið endilega kommenta og láta mig vita hverjar komast :)
Kv. Sólveig

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 16:08:22 / kusa

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!!

Sælar allar saman og gleðilegt nýtt ár! Takk fyrir kveðjurnar - síminn minn vill víst ekki senda sms frekar en fyrridaginn :s ég vona að þið afsakið það.

2008 var viðburðarríkt ár hjá Ommilettunum; Kristín og Stína útskrifuðust með BS í vor, Sólveig fékk vinnu sem flugmaður, Kristín flutti til Danmerkur og Unnur og Björgvin hjálpuðu til við að fjölga mannkyninu, fyrst okkar í þessum vinahópi. Við Arna höldum að sjálfsögðu áfram í skólanum og erum í heilmiklu verknámi á LSH báðar tvær. Þannig að þrátt fyrir kreppuna held ég að okkur vegni bara ágætlega öllum saman :haha: Skál fyrir því segi ég nú bara!

Ég hlakka til að sjá ykkur allar á nýju ári, og það verður vonandi fyrr en síðar ;)

Áramótakveðja,
Katrín Þóra


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 23:37:19 / kusa

16 dagar...

Jæja skvísur,

best að blogga aðeins núna þar sem maður ætti að vera að læra. Er alveg ógeðslega löt. :s
Í dag var seinasti skóladagurinn minn. Svo fer ég í fyrsta prófið mitt næsta fimmtudag, og það verður munnlegt. Já, guð minn góður. Er alveg að fríka út. Ég dreg e-ð efni og þarf svo að blaðra í hálftíma um einhverja gerð af öldum.

Annars er ég farin að hlakka alveg fáránlega mikið til að koma heim til Íslands um jólin. Finnst nógu langt síðan ég hitti ykkur en það eru komnir 4 mánuðir síðan ég hitti Einar. Alveg crazy. Verst hvað ég get stoppað stutt. Kem 22. des. og fer aftur 4. jan. Ég hugsa samt að ég stefni á það að koma aftur í heimsókn í páskafríinu.

Það er svo sem ekkert merkilegt að frétta af mér. Hangi flesta daga bara uppí skóla og þykist læra. Jæja, ætla að halda áfram að lesa um Stokes theory for weakly nonlinear water waves.

Sjáumst eftir ekki svo marga daga! :d
Knús,
Kristín




» 11 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 16:48:20 / kusa

Allt og ekkert.....

Já ég held við getum verið sammála um að við séum frekar lélegir bloggarar. En ég hef ekki skrifað hérna alveg mjög lengi. Svo sem ekki mikið að frétta nema að Kristinn Narfi gjörsamlega springur út þessa daganna. Hann stækkar svo ótrúlega hratt og maður sér alveg mun á honum frá degi til dags hvað hann styrkist og þroskast. Við erum bæði í fríi núna og Björgvin verður með okkur heima alveg fram yfir áramót, okkur Kristni leiðist það nú ekki. En vildi líka láta ykkur vita að við erum búin að breyta slóðinni inn á síðuna hans, er búin að setja tengilinn hérna vinstra megin undir bloggara, þannig ég ætla nú ekki að vera að tala meira um hann hérna, hægt að lesa meira og sjá myndir á síðunni hans.
Það er alveg ótrúlegt hvað styttist mikið í jólinn, tíminn gjörsamlega hleypur frá manni. Ég hlakka alla vega alveg ótrúlega til jólanna. Held að mig hafi verið farið að hlakka til þeirra bara í október:p
Við förum svo norður næstu helgi. Ætli við förum ekki í kringum 29 okt og verðum í svona ca viku. Við verðum svo að vera duglegar að hittast þegar prófatörnin er búin hjá öllum.
Jæja læt þetta duga í bili
Kv.
Unnur


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 23:13:33 / kusa

Lélegustu bloggarar ever!!

Ótrúlegt en satt þá virðast allir vera dauðir hér á Íslandinu góða, Bretlandinu og í Danmörkunni... hvað ekkert að frétta??

Annars tókst mér að hitt á hana Sólveigu í dag þar sem að hún var í smá heimsókn á klakanum yfir helgina. En allavega þá ætlar hún að koma aftur 29.nóvember og ég var að spá hvort við ættum ekki að reyna að hittast eitthvað á meðan hún væri hér... þannig að ég var að spá hvort þið mynduð vilja koma í heimsókn til mín sunnudaginn 30.nóv??

Endilega látið vita hvernig það henntar ykkur!!

Vonandi hafa allir það ágætlega og vonandi fer að koma eitthvað líf á þetta blogg okkar!!

kveðja hrísgrjónanúðlu-Arna

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 22:12:05 / kusa

Maður bara að fara að flytja!!

Jæja, þá er bara komið að því maður er að fara að flytja að heiman! 8)

Alla vega þá er ég búin að taka við lyklunum af íbúðinni sem ég var að fá og nú er bara að fara að flytja inn. endilega ef einhverjir sjálfboðaliðar eru til í að hjálpa þá myndi ég alveg þyggja það!! ;) Ekki það að ég hafi einhvern tíma í að flytja sjálfa mig, á að skila mjög stóru verkefni núna á mánudaginn sem ég er ekki byrjuð á og er að fara að vinna annað kvöld en vonandi gengur þetta upp svo ég geti flutt núna um helgina! :haha:

Nú verða bókað fullt af saumó og spilakvöldum haldin hjá mér og ég hlakka ekkert smá til!! en allavega vildi bara láta ykkur vita um þessa ánægjulegu frétt!!

kveðja Arna sem flytur bráðum á klausturstíg 11!!!  :haha::d8)

» 13 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 21:33:47 / kusa

NÚ FER AÐ KOMA AÐ ÞVÍ!!!

UNNUR er nú að sigla inn í síðustu vikurnar af meðgöngunni og það er nú bara eins gott að maður verði látin vita um leið og hún fer af stað...

því heimta ég að fá sms um leið og það eru einhverjar fréttir... alveg bannað að láta mann ekkert vita!!!

kv. Arna sem er að deyja úr spenningi og verkefna álagi!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 18:24:51 / kusa

Jæja , er ekki kominn tími á að ég komi með fréttir ...

Já , héðan er bara allt gott að frétta. Það er bara búið að vera frekar fínt hérna í Manchester. Er búin að kynnast fólkinu sem er með mér á námskeiðinu frekar vel og við erum búin að vera frekar dugleg að finna okkur e-ð að gera þegar við eigum frí-daga. Við fórum til dæmis í Tívolí í Blackpool sem kom mér mjög á óvart. Ég sýni ykkur vonandi myndir fljótlega.

Michael er líka búin að koma tvisvar í heimsókn og er hérna reyndar núna , sem er líka mjög ánægjulegt. Mér tókst meira að segja að draga hann á fótboltaleik um daginn (Utd. - Newcastle) og það var þvílíkt gaman að sjá stemninguna og allt það , þó að þetta hafi ekki verið mitt lið.

Tegundaráritunin var frekar erfið , en er búin núna - sem er gott. Og í dag vorum við í SEP þjálfun (Standard Emergency Procedures) og við þurftum að synda björgunarsund , klifra upp í björgunarbáta , slökkva elda og renna okkur niður rennibraut í A340 (sem var frekar stór) - ss. bara nokkuð skemmtilegur dagur.
Svo er Base Check ið okkar 21. sept. þar sem við gerum amk 6 snertilendingar í vélinni - sem verður örugglega geggjað gaman ;) Við "hittum" vélina í Belfast á fljúgum e-rt þar sem veðrið er nógu gott til þess að þeir treysti okkur til að lenda vélinni , hehe. Síðan þurfum við fjögur að gera 6-12 snertilendingar og fljúga svo til baka.

Annars verður fyrsta flugið mitt sem First Officer 2. október til Zakhinthos í Grikklandi. (Er ekki alveg klár á hvernig það er stafað).  
En nóg um það - Mamma er að koma í heimsókn til mín núna á eftir. Ég ætla svo að sýna henni Manchester og kannski reyna að versla smá - þó að pundið sé náttúrulega alveg rugl hátt ... 

Síðan vona ég að ég geti komið í heimsókn til Íslands í nokkra daga einhvern tíman fljótlega og kannski til DK líka að kíkja á Kristínu.

Fyrir utan það þá bið ég bara að heilsa og vona að allir hafi það gott. 

- Ég er líka orðin duglegri að vera á skype og svona ef þið viljið spjalla :) 

Kveðja Sólveig Rún


» 31 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 15:58:09 / kusa

Danmörk 2

Þið verðið að vera duglegri að blogga stelpur! Ég fæ annars engar fréttir.
Annars er bara allt gott að frétta af mér eins og vanalega. :) Fór loksins í IKEA um seinustu helgi eins og þið flestar vitið. Keypti alveg helling og eyddi svo öllum sunnudeginum í að skrúfa saman hluti. Verkfræðingurinn sjálfur gat þetta varla. Braut bara 2 spýtur og þurfti nokkrum sinnum að skrúfa hluti aftur í sundur eftir að hafa snúið sumum spýtum öfugt o.s.frv. Svo vantaði auðvitað skrúfurnar sem áttu að fylgja sófanum þ.a. ég þurfti að gera mér aðra ferð í IKEA. En núna er þetta allt rosa flott og fínt. Vonum bara að brotna spýtan í kommóðunni gefi sig ekki og að enginn taki eftir því að það vantar bakið í hilluna mína.
Síðan skellti ég mér á byrjendanámskeið í salsa. Verð alltaf á þriðjudögum milli 17:15-19:15. Þetta er alveg rosa skemmtilegt og ég held að mér veiti ekki af að læra að dilla mjöðmunum og snúa mér í hringi. :) Kenni ykkur einhver spor við tækifæri.
Annars er ég að verða of sein á eldhúshreinsifund. Það á að taka allt í gegn og þrífa.
Komið endilega með einhverjar fréttir.
Ykkar saknandi og bráðum dönskumælandi,
Kristín



» 5 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 21:09:45 / kusa

Danmörk!!

Sælar dömur!
Eitthvað að frétta af Íslandi?
Það er að minnsta kosti bara allt gott að frétta af mér. :) Danmörk er æði. Eini gallinn er hvað allt er dýrt hérna. Svo rignir að vísu frekar mikið en það er ekkert sem sannur Íslendingur getur kvartað undan. 8)
Herbergið mitt er alveg rosa fínt, miklu stærra en ég bjóst við. Er einmitt að hugsa um að skella mér í IKEA á morgun og kaupa mér kommóðu og fleira. Er jafnvel að hugsa um að kaupa mér svefnsófa og sófaborð ef ég finn e-ð ódýrt. Þá hafið þið enga afsökun fyrir að heimsækja mig ekki. :) Að vísu er ég sú eina sem bý hérna á þessu kollegi og er ekki Dani. Ég hélt að ég kynni e-ð í dönsku en guð minn góður. Það er ekki fræðilegur að skilja neitt þegar fólk talar. Ef ég horfi á sjónvarpið með texta skil ég alveg en án textans er þetta vonlaust. Ég er virkilega að spá í að skella mér á e-ð dönskunámskeið.
Ég keypti mér rosa flott hjól í dag. Það er þriggja gíra með bjöllu, körfu og bögglabera. Er algjör gella á því. ;) Skólinn byrjaði líka í dag. Mér leist allavega bara vel á fagið sem ég var í. Vorum bara svona 10 nemendur en þetta verður vonandi bara nice. Svo keypti ég mér líka kort í háskólaræktina hérna. Það kostar ekki nema 8500 ISK fram að áramótum og þetta er bara mjög fínt. Kemst líka í spinning og fleira þarna.
Í seinustu viku var kynningarvika á skólanum og öllu. Þá var alþjóðlegu masters nemendunum skipt í nokkra 10-15 manna hópa og flest kvöldin enduðu á djammi. Það var rosa gaman og maður kynntist alveg fullt af fólki alls staðar að úr heiminum.
Jæja, ætla að kíkja aðeins á glósur áður en ég fer í háttinn. Endilega segið mér einhverjar fréttir. Ekkert skemmtilegt sem gerðist á menningarnótt?
Hafið það allavega yndislegt!
Ykkar,
Kristín.


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 15:25:12 / kusa

hver er laus næsta föstudagskvöld?

Hæ hæ stelpur mínar og takk æðislega fyrir allar afmæliskveðjurnar!!
Ykkur er boðið í smá afmæliskaffi til mín föstudagskvöldið næsta - eigum við ekki bara að segja svona uppúr 8?
Hlakka annars til að sjá ykkur allar á fimmtudaginn,
Kveðja
Katrín Þóra


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10